Tillögunni er vísað frá með 4 atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Vinstri grænna gegn 3 atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og Kjartans Magnússonar, óháðs fulltrúa.
Lögð fram svohljóðandi bókun Kjartans Magnússonar, óháðs fulltrúa:
Undirritaður lýsir yfir furðu sinni yfir því að fulltrúar vinstri meirihlutans vísi frá tillögu um að gripið verði til aðgerða í því skyni að stemma stigu við ólöglegum og hættulegum hraðakstri bifhjóla og á göngu- og hjólreiðastígum borgarinnar. Mikil brögð eru að slíkum hraðakstri og veldur hann verulegri slysahættu, ekki síst fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur eins og dæmin sanna.