Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 12. júní 2025 var lögð fram umsókn
Félagsbústaða hf.
, dags. 8. apríl 2025, ásamt greinagerð Noland arkitekta, ódags., um breytingu á deiliskipulagi Laugaráss vegna lóðarinnar nr. 6 við Austurbrún. Í breytingunni sem lögð er til felst að koma fyrir byggingarreit á lóð fyrir djúpgáma, samkvæmt uppdr. Noland arkitekta, dags. 7. apríl 2025. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju.
Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar. Samþykkt að falla frá kynningu þar sem breyting á deiliskipulagi varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda (og borgarinnar), sbr. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir óverulega breytingu á deiliskipulagi á grundvelli málsmeðferðar skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga og þarf að greiða skv. 8.2. gr. í gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1276/2023, áður en breytingin er auglýst í B-deild Stjórnartíðinda.