Hálsahverfi - Breyting á deiliskipulagi - Krókháls 7A
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 vikum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 1048
10. febrúar, 2026
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Kristjáns Ásgeirssonar, dags. 4. apríl 2025, bréf, dags. 4. apríl 2025, um breytingu á deiliskipulagi Hálsahverfis vegna lóðarinnar nr. 7A við Krókháls. Í breytingunni sem lögð er til felst m.a. að byggingarreitur breytist og færist fjær lóðamörkum við Krókháls. Lóð Krókháls 7A stækkar til norðurs um 370 m2 inn á lóð Hestháls 14. Á móti þessari lóðarbreytingu er látinn af hendi lóðarskiki austan megin lóðar undir framtíðar tengingu Hestháls við Krókháls að ósk borgaryfirvalda að stærð 409,5 m2. Lóðin Krókháls 7A er 5.585 m2 en verður 5.545,5 m2, nýtingarhlutfall óbreytt. Lóð Hestháls 14 minnkar um 370 m2, lóðin er 25.765 m2 en verður 25.395 eftir breytingu, samkvæmt deiliskipulagsuppdr. ALARK arkitekta, dags. 11. nóvember 2025, br. 9. febrúar 2026. Einnig eru lagðir fram skýringaruppdrættir ALARK arkitekta, dags. 11. nóvember 2025 og greinargerð ALARK arkitekta, dags. 11. nóvember 2025. Tillagan var grenndarkynnt frá 11. desember 2025 til og með 29. janúar 2026. Umsögn barst  frá Veitum, dags. 29. janúar 2026, þar sem bent er m.a. á stofnlagnir hitaveitu. Einnig er lögð umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 10. febrúar 2026.
Samþykkt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, dags. 10. febrúar 2026, og heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa sbr. viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Svar

Samþykkt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, dags. 10. febrúar 2026, og heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa sbr. viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.