Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 10. apríl 2025 var lögð fram umsókn
Reirs verks ehf.
, dags. 2. apríl 2025, um breytingu á deiliskipulagi Vesturhafnar (Örfiriseyjar) vegna lóðarinnar nr. 27 við Fiskislóð. Í breytingunni sem lögð er til felst að auka nýtingarhlutfall og hækka hámarkshæð, samkvæmt uppdr. Nordic Office of Architecture, dags. 31. mars 2025. Einnig er lagt fram skuggavarp Nordic Office of Architecture, dags. 12. maí 2025, minnisblað Nordic Office of Architecture, dags. 21. maí 2025, og bréf Faxaflóahafna, dags. 2. apríl 2025. Erindinu var vísað til meðferðar verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 11. september 2025.
Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 11. september 2025, samþykkt.