Fyrirspurn
Lögð fram svohljóðandi ítrekun á tillögu fulltrúa Sjálfstæðisflokksins sbr. 25. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs dags. 2. apríl 2025:
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins ítreka tillögu sína um að fjallað verði um framkvæmdir, sem fyrirhugaðar eru á vegum umhverfis- og skipulagssviðs á árinu 2025, á vettvangi ráðsins. Tillagan var lögð fram á fundi ráðsins 2. apríl sl. og samþykkt á fundi þess 9. apríl. Mikilvægt er að fulltrúar ráðsins séu vel upplýstir um fyrirhugaðar framkvæmdir í borginni, ekki síst við götur, gangstéttir, hraðahindranir og græn svæði, viðgerðir sem og nýframkvæmdir. Helsti framkvæmdatími ársins er genginn í garð og verður vart öðru trúað en ákvarðanir um öll helstu verk ársins hafi nú þegar verið teknar og séu í fullum undirbúningi eða jafnvel komnar til framkvæmdar. Óskað er eftir því að yfirlit vegna framkvæmda ársins verði kynnt eigi síðar en á næsta fundi ráðsins 25. júní.