Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 10 mánuðum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 337
Annað
‹ 28
29
Fyrirspurn
Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokksins: Ábendingar hafa borist um að misbrestur sé á því að ferðir strætisvagna séu tímastilltar í því skyni að sem auðveldast sé fyrir farþega að ná tengivagni frá skiptistöðvum Strætó bs. út í viðkomandi hverfi. Bent hefur verið á að þegar strætisvagn á meginleið (t.d. leið 1) komi á skiptistöð, sé algengt að viðkomandi hverfisvagn sé nýfarinn. Eigi þetta óhagræði ekki síst við á kvöldin og um helgar á skiptistöðvum í Ártúni, Firði, Hamraborg og Mjódd. Óskað er eftir upplýsingum um hvernig núverandi fyrirkomulagi er háttað. Standa til úrbætur að þessu leyti í því skyni að bæta þjónustu við strætisvagnafarþega?