Álfabakki 2A
Álfabakki 2A
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 mánuðum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1230
4. nóvember, 2025
Annað
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að breyta erindi USK23080010 þannig að breytingar verða á rýmisnúmerum, kjötvinnsla minnkar og gerðar eru smávægilegar breytingar á innra skipulagi 1. hæðar í verslunar- og skrifstofuhúsi á lóð nr. 2A við Álfabakka. Erindinu fylgir greinagerð brunavarna dags 23. apríl 2025 og yfirlit breytinga. Einnig er lögð fram leiðrétt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 19. maí 2025, sbr. afgreiðslufund skipulagsfulltrúa 28. október 2025. Á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa 17. október 2023 var samþykkt umsókn um leyfi til að byggja stálgrindarhús, tveggja hæða að hluta á lóð nr. 2A við Álfabakka (USK23080010). Á afgreiðslufundi 20. maí sl. var staðfest ákvörðun byggingarfulltrúa um samþykki breytinga á byggingar leyfinu (USK25030304). Rýmisnúmerum var breytt, kjötvinnsla minnkuð og gerðar smávægilegar breytingar á innra skipulagi 1. hæðar. Ákvörðun um að samþykkja breytingar á byggingarleyfinu byggðu á jákvæðri umsögn skipulagsfulltrúa sem lá fyrir í málinu. Á afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 28. október sl. var samþykkt leiðrétt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 19. maí 2025, vegna umsóttra breytinga á byggingarleyfinu (USK25030304). Með vísan til framangreinds. er ákvörðun byggingarfulltrúa frá 16. maí sl., sem staðfest var á afgreiðslufundi hans 20. maí sl., að samþykkja breytingar á byggingarleyfinu, afturkölluð, sbr. 1. töluliður 25. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Með vísan til framangreindrar afturköllunar liggur fyrir byggingarfulltrúa að endurákvarða í málinu. Á grundvelli leiðréttrar umsagnar skipulagsfulltrúa, dags. 19. maí 2025, yfirliti breytinga og greinargerðar brunavarna, dags. 23. apríl 2025 er erindi USK25030304 samþykkt enda samræmast breytingarnar ákvæðum laga nr. 160/2010 um mannvirki, sbr. einkum 1. og 2. mgr. 9. gr., 2. mgr. 10. gr. og 13. gr. laganna.“ Afgreiðist með sömu stimplum og stofnerindi.