Fyrirspurn
Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 18. mars 2025 ásamt kæru nr. 42/2025, dags. 17. mars 2025, þar sem kærð er ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 18. febrúar sl. þar sem synjað var umsókn kæranda um byggingarleyfi til þess að bæta niðurgröfnum kjallara við fasteignina að Brekkugerði 19. Einnig er lögð fram greinargerð Reykjavíkurborgar, dags. 15. apríl 2025. Jafnframt er lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 15. júlí 2025.
Úrskurðarorð: Hafnað er kröfu kæranda um ógildingu ákvörðunar byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 18. febrúar 2025 um að synja umsókn um leyfi fyrir niðurgrafinni viðbyggingu að Brekkugerði 19, Reykjavík.