Rimahverfi svæði H - Breyting á deiliskipulagi - Viðarrimi 25
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 7 mánuðum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 1019
17. júlí, 2025
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 20. mars 2025 var lögð fram umsókn Teiknistofu Jóns Guðmundssonar ehf., dags. 13. mars 2025, ásamt bréfi, dags. 12. mars 2025, um breytingu á skilmálum deiliskipulags Rimahverfis - Svæðis H, vegna lóðar nr. 19-25 við Viðarrima og varðar hús nr. 25. Í breytingunni sem lögð er til felst að hámarksdýpt útbyggingar frá útvegg er aukin úr 3 m í 3,6 m. Heimil lengd hennar verður 70% af húsvegg en ekki 1/3 af húsvegg. Þá þarf útbygging ekki að vera létt / glerskáli heldur getur hún verið viðbygging við keðjuhúsið. Hæð hennar má vera þannig að hægt sé að uppfylla lágmarkskröfur um lofthæð skv. byggingarreglugerð, samkvæmt tillögu, dags. 17. júlí 2025.  Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar. Samþykkt að falla frá kynningu þar sem breyting á deiliskipulagi varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda (og borgarinnar), sbr. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir óverulega breytingu á deiliskipulagi á grundvelli málsmeðferðar skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga og þarf að greiða skv. 8.2. gr. í gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1381/2024, áður en breytingin er auglýst í B-deild Stjórnartíðinda.
Svar