Síðast Vísað til umhverfis- og skipulagssviðs á fundi fyrir 11 mánuðum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 335
Frestað
Fyrirspurn
Lögð fram svohljóðandi tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins: Lagt er til að gangstéttir við Skildinganes verði lagfærðar. Við Skildinganes 23 og 32 og 48 (við gangbraut) eru gangstéttir brotnar, sprungnar og ójafnar. Slíkt hefur slysahættu í för með sér og hefur borist ábending um að fólk hafi ítrekað hrasað við tvo fyrstnefndu staðina. Þá er gangstétt einnig ójöfn, brotin og sprungin á kafla við eystri enda götunnar og er jafnframt lagt til að hann verði lagfærður.
Svar

Frestað.