Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingafulltrúa frá 25. mars 2025 þar sem sótt er um leyfi til þess að breyta innra skipulagi og innrétta veitingastað í flokki 2 í rými 0101 og koma fyrir nýjum flóttastiga við norðurhlið verslunar- og íbúðarhúss á lóð nr. 83 við Laugaveg. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 27. mars 2025. Neikvætt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, dags. 27. mars 2025.
Svar
Neikvætt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, dags. 27. mars 2025.