Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 6 dögum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 378
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um myndavélamastur á Reykjavíkurflugvelli, sbr. 37. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs 5. mars 2025. Einnig er lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs, skipulagsfulltrúa dags. 20. apríl 2026.
Svar

Tillögunni er vísað frá með 4 atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Sósíalistaflokks Íslands, Pírata og Vinstri grænna gegn 2 atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins. Fulltrúi Viðreisnar situr hjá við afgreiðslu málsins.