Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 10 mánuðum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 339
Annað
Fyrirspurn
Fram fer kynning á fyrirspurn Klasa ehf. , dags. 26. febrúar 2025, ásamt drögum að greinargerð, dags. 20. febrúar 2025, um nýtt deiliskipulag fyrir Norður Mjódd vegna lóðanna nr. 4-6 við Stekkjarbakka og 7 við Álfabakka þar sem gert er ráð fyrir nýjum íbúðum, dvalarsvæðum, verslun og þjónustu og tekur tillagan tillit til framtíðarsýnar vegna legu Borgarlínu og Borgarlínustöðvar. Fulltrúar Samfylkingar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun: Við þökkum fyrir góða kynningu á drögum að skipulagi uppbyggingar íbúðarhúsnæðis í Norður-Mjódd. Enginn vafi leikur á að þessi uppbygging með fjölbreytilegu sniði húsa og stórum inngarði verður til mikilla bóta og eftirsótt til íbúðar. Verkefnið er enn í mótun. Mikilvægt er að huga að skólamálum og æskilegt að uppbygging leikskóla verði hluti af verkefninu. Rétt er að minna á að í samstarfsyfirlýsingu meirihluta borgarstjórnar er kveðið á um heildarskipulag Mjóddarinnar. Uppbygging Norður-Mjóddar ætti að falla að því. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun: Mikilvægt er að uppbygging í Norður-Mjódd sé í góðum tengslum við núverandi hverfi og hugmyndafræði skipulags í Neðra-Breiðholti. Brýnt er að varðveita sérkenni hverfisins í stað þess að byggja háreista byggð í Mjódd, sem yrði í algerri andstöðu við skipulag hverfisins. Við skipulag þarf því að gæta þess að hin nýja byggð valdi sem minnstu skuggavarpi í Bakka- og Stekkjahverfi. Áheyrnarfulltrúa Viðreisnar leggur fram svohljóðandi bókun: Áhugavert er að sjá hugmyndir að uppbyggingu í Norður Mjódd. Þó rými hafi verið lækkuð eru 5 hæða hús í nágrenni við núverandi byggð að vekja töluverðan ótta um væntanlegt skuggavarp. Ber þá einnig að kanna hvernig þjónustueiningar í hverfinu bera þessa viðbót, þegar horft er til Grunn, - og leikskóla verður að teljast hæpið að hverfið ráði við slíka viðbót, án þess að áður sé farið í aðgerðir til að styrkja þessa innviði.