Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 27. mars 2025 var lögð fram fyrirspurn Moldarblöndunnar-Gæðamoldar ehf., dags. 7. febrúar 2025, um áframhaldandi starfsemi fyrirtækisins að Gufunesvegi. Einnig er lagður fram tölvupóstur Ásdísar Sturlaugsdóttur f.h. Moldarblöndunnar-Gæðamoldar ehf., dags. 6. febrúar 2025 og kort af svæðinu. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnastjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 10. apríl 2025.
Neikvætt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, dags. 10. apríl 2025.