Fyrirspurn
Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Tillögu borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um breytingu á reglum um íbúakort frá 23. ágúst 2023 var svarað þann 13. október sama ár og vísað til vinnu á Umhverfis- og skipulagssviði um yfirferð á reglum um íbúakort. Síðan eru 477 dagar liðnir og lítið spurst til nýrra reglna. Ítrekað síðan þá hefur umræða um íbúakort komið upp innan borgarinnar og í fjölmiðlum, í íbúaráðum, borgarráði og víðar. Þörfin fyrir endurskoðun og bætingu reglnanna er enn brýnni eftir lengingu gjaldskyldu og stækkun gjaldskyldusvæða. Því ítreka borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins ákall um breytingu á reglum um íbúakort og íbúum á gjaldsvæðum verði gert auðveldara að fá og nýta íbúakort.