Fyrirspurn
Lögð fram umsagnarbeiðni Hvalfjarðarsveitar, dags. 15. apríl 2026, þar sem óskað er eftir umsögn um tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 fyrir jörðina Galtarlæk. Breytingin felur í sér að athafnasvæði AF15 á Galtarlæk stækkar og umfang starfseminnar eykst. Nýtt hafnarsvæði verður skilgreint neðan athafnasvæðisins. Svæðið sem um ræðir er skilgreint sem landbúnaðarland í gildandi skipulagi. Hin nýju athafna- og hafnarsvæði verða vestur frá núverandi atvinnusvæði og hafnarmannvirkjum á Grundartanga. Áætlað er að ný höfn muni þjónusta flutningaskip og stór skemmtiferðaskip, með viðlegukanti sem nýtist til fjölbreyttrar hafnsækinnar starfsemi. Athafnasvæðið mun hýsa hreinlega og vistvæna starfsemi, svo sem vörugeymslur, geymslusvæði, léttan iðnað og þjónustustarfsemi tengda hafnarrekstri. Sérstök áhersla verður lögð á umhverfisvænar lausnir varðandi neysluvatn, fráveitu og raftengingar fyrir skip og bifreiðar, samkvæmt tillögu Eflu, dags. 15. janúar 2026. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 9. júní 2026.