Norðurstígsreitur - Breyting á skilmálum deiliskipulags - Norðurstígur 3
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 998
30. janúar, 2025
Annað
Fyrirspurn
Lagt fram erindi THG Arkitekta, dags. 30. janúar 2025, um breytingu á skilmálum deiliskipulags Norðurstígsreits vegna lóðarinnar nr. 3 við Norðurstíg. Í breytingunni sem lögð er til felst leiðrétting á skilmálum er varðar byggingarmagn og nýtingarhlutfall, samkvæmt tillögu THG Arkitekta, dags. 28. janúar 2025.
Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar. Samþykkt að falla frá kynningu þar sem breyting á deiliskipulagi varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda (og borgarinnar), sbr. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir óverulega breytingu á deiliskipulagi á grundvelli málsmeðferðar skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga og þarf að greiða skv. gr. 8.2. í gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1381/2024, áður en breytingin er auglýst í B-deild Stjórnartíðinda.
Svar