Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 26. september 2024 var lögð fram fyrirspurn Hans Olav Andersen, dags. 26. ágúst 2021, varðandi þróun og stækkun lóðar nr. 12 við Háaleitisbraut vegna uppbyggingar íbúða- og verslunarhúsnæðis á bensínafgreiðslulóð Atlantsolíu, samkvæmt tillögu Teiknistofunnar Traðar, útgáfa A, dags. 19. ágúst 2021, og umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 18. mars 2022. Gert er ráð fyrir niðurrifi núverandi bygginga á lóðinni. Í framhaldinu skiluðu hönnuðir tillögu, útgáfu B, dags.29. ágúst 2022 sem upplegg að fundi og frekari vinnslu. Þá var lögð fram tillaga Teiknistofunnar Traðar, útgáfa D, dags. 15. júlí 2023, og minnisblað, dags. 15. ágúst 2023, sem barst embættinu eftir umsögn skipulagsfulltrúa og samtal í framhaldinu með hliðsjón af athugasemdum skipulagsfulltrúa við fyrri tillögu. Jafnframt var lögð fram uppfærð tillaga Teiknistofunnar Traðar, útgáfa F, dags. 31. júlí 2024, og minnisblað, dags. 17. september 2024, þar sem uppbyggingunni er nú skipt upp í tvö fjölbýlishús, vegna lagnakvaðar
Veitna ohf.
, ásamt bílskýli á norðvesturhluta lóðar. Dvalarrými íbúa verður m.a. komið fyrir á lagnakvöðinni. Byggingarnar eru sem fyrr segir 5, 6 og 7 hæða fjölbýlishús sem stallast upp í átt að Safamýri. Á jarðhæð austan við húshluta er gert ráð fyrir atvinnustarfsemi. Tillagan gerir ráð fyrir nýjum bílastæðahluta á stækkaðri lóð við gatnamót Kringlumýrarbrautar og Háaleitisbrautar. Á þessum hluta er aðkoma með rampi í bílakjallara og nýtt bílastæðaskýli næst Kringlumýrarbraut meðfram núverandi bílskúralengju að Álftamýri 2-6. Helstu stærðir tillögu eru 7.177m2 í séreign íbúða og 323m2 í verslun og þjónustu, samtals 7.500m2. Dvalarsvæði ofanjarðar er 1.841m2 ásamt svölum 620m2. Neðanjarðar er gert ráð fyrir 1.192 m2 bílgeymslu á stækkaðri lóð sem nemur 3.824m2. Nýtingarhlutfall er 2,10. Einnig var lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 26. september 2024. Fyrirspurn er nú lögð fram að nýju ásamt uppfærðri tillögu Teiknistofunnar Traðar, útgáfu K, dags. 27. nóvember 2024, Þar sem reynt var að draga úr fyrirferð og umfangi með samtals 6.539m2 í séreign íbúða og 476m2 í sameiginleg dvalarsvæði íbúa. Nýtingarhlutfalli á stækkaðri lóð (3.809m2) er 2,18. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 30. janúar 2025.
Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 30. janúar 2025, samþykkt.