Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 10 mánuðum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 332
Annað
‹ 26
27
Fyrirspurn
Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokksins: Óskað er eftir upplýsingum um fyrirkomulag endurnýjunar íbúakorta Bílastæðasjóðs. Æskilegt er að slík endurnýjun gangi greiðlega fyrir sig og hafi sem minnsta fyrirhöfn í för með sér fyrir íbúa. Er rétt að íbúar þurfi árlega að leggja fram nýja umsókn um íbúakort þótt hvorki sé skipt um bíl né heimilisfang og allar upplýsingar liggi fyrir? Hversu langan tíma tekur að afgreiða umsókn um íbúakort þegar sótt er um endurnýjun íbúakorts og allar upplýsingar liggja fyrir? Er hægt að koma því við að Bílastæðasjóður staðfesti móttöku netumsókna um íbúakort?