Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 30. janúar 2025 var lagt fram málskot Friðriks Pálssonar og Ingibjargar Guðnýjar Friðriksdóttur, dags. 24. janúar 2025, vegna neikvæðrar afgreiðslu skipulagsfulltrúa frá 6. júní 2024 um að setja bílastæði á lóð nr. 18 við Vesturbrún, samkvæmt greinargerð, ódags. og uppdr. Betula, dags. 1. september 2023. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 6. júní 2024. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju. Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs til afgreiðslu.
Svar
Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs til afgreiðslu.