Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 27. febrúar 2025 var lögð fram fyrirspurn
BL ehf.
, dags. 23. janúar 2025, um breytingu á notkun lóðarinnar nr. 2 við Sævarhöfða úr viðskipta- og þjónustulóð í íbúðarlóð, samkvæmt tillögu Arkís arkitekta, dags. í desember 2024. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnastjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 20. mars 2025.
Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 20. mars 2025, samþykkt.