Síðast Vísað til umhverfis- og skipulagssviðs á fundi fyrir 1 ári síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 331
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokksins: Óskað er eftir upplýsingum um fyrirkomulag gatnalýsingar í borginni og skýringum á því hvers vegna henni hefur verið verulega ábótavant að undanförnu. Óvirkir ljósastaurar eru áberandi víða í borginni, ekki síst við stofnbrautir eins og Hringbraut, Miklubraut og Vesturlandsveg. Að kvöldi 20. janúar sl. gat t.d. að líta 27 óvirka ljósastaura við Vesturlandsveg, einungis á kaflanum milli Sæbrautar og Höfðabakka. A: Er um að ræða þörf á peruskiptum eða víðtækari bilanir og ef svo er, í hverju felast þær? B: Hvernig er eftirliti háttað með óvirkum ljósastaurum? Er slíkt eftirlit reglubundið og við hvaða tíma er þá miðað? C: Hvaða verkferlar eru í gildi um viðhald og viðgerðir á óvirkum ljósastaurum?