Frestað. Vísað til athugasemda.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.
10.Dyngjuvegur 18 - USK24080149
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN061051 sem snýr að sleppistæði verða fjarlægð og
bílastæði fatlaðra fært yfir að Langholtsvegi austanmegin við leikskólann á lóð nr.18 við
Dyngjuveg.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Afgreiðist með sömu stimplum og stofnerindi.
11.Fossháls 13-15 - USK24120220
Sótt er um leyfi til að setja 1,2 metra steyptan vegg á lóðarmörk sem lækkar niður í 1,0
metri við innkeyrslur á lóð nr. 13-15 við Fossháls.
Skipulagsfulltrúi gerir ekki athugasemd við erindið sbr. bókun 23. janúar 2025.
12.Freyjugata 1 - USK24040329
Sótt er um leyfi til þess að innrétta "take away" veitingarstað í flokki 1 tegund d og 2
starfsmenn með tilheyrandi eldhúsi og starfmannaðstöðu í rými 0103 í verslunar- og
íbúðarhúsi á lóð nr. 1 við Freyjugötu.
Erindi fylgir afrit af ódagsettum viðauka við leigusamning vegna einkaafnota rýmis 0103 af
sameign og afrit af aðalteikningu samþykktri 30. mars 1995.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.
13.Garðastræti 45 - USK25010174
Sótt er um leyfi til að breyta bílskúr í geymslu við hús á lóð nr. 45 við Garðastræti.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.
14.Gerðuberg 3-5 - USK24100176
Sótt er um leyfi til að stækka svalir og einangra og klæða að utan menningarmiðstöðina í
Gerðubergi á lóð nr, 3-5 við Gerðuberg.
Erindi fylgir yfirlit breytinga.
Erindinu fylgir umsögn skipulagsfulltrúa 23. janúar 2025.
15.Grettisgata 79 - USK24120126
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðri íbúð í risi og til að byggja kvisti og svalir á hús á lóð nr. 79
við Grettisgötu.
Stærð minnkar um 2,2 fermetra.
Skipulagsfulltrúi gerir ekki athugasemd við erindið sbr. bókun 23. janúar 2025.
16.Hallgerðargata 13 - USK25010074
Sótt er um leyfi til þess að breyta erindi BN055918 þar sem breytt er innra skipulagi á 1.
hæð í húsi á lóð nr. 13 við Hallgerðargötu.
Erindi fylgir brunaskýrsla dags. 30. nóvember 2020.
Afgreiðist með sömu stimplum og stofnerindi.
17.Hlaðbær 17 - USK24030335
Sótt er um leyfi til að síkka glugga í kennslustofum og gera dyr þar sem fyrir eru gluggar,
gera skábraut við vestur inngang á norðurhlið, einangra og klæða eldri hluta húss með
sléttum álplötum, breyta lagnakerfum, styrkja burðarvirki og uppfæra eldvarnir í húsi á lóð
nr.17 við Hlaðbæ.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.
18.Hofteigur 12 - USK25010210
Sótt er um leyfi til þess að breyta bílskúr í vinnustofu og breyta timbur útistiga í stálstiga á
húsi á lóð nr. 12 við Hofteig.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.
19.Hraunberg 8 - USK25010217
Sótt er um leyfi til að byggja tvær einnar hæðar viðbyggingar með tengigangi á milli og yfir
í eldra verknámshús Fjölbrautarskólans í Breiðholti og verður mhl. 02 á lóð nr. 8 við
Hraunberg.
Erindi fylgir greinargerð um brunavarnir frá Örugg dags. 12. janúar 2025, greinargerð um
ábyrgðarsvið hönnuða ódagsett, hljóðvistargreinargerð I frá Myrru dags. 16. desember
2024 og orkurammi dags. 15. janúar 2025.
Stærð mhl. 02, A-rými: 2.751,1 ferm., B-rými: 67,5 fermetrar, 15.991,5 rúmmetrar.
20.Hrossnes 10-16 - USK24100358
Sótt er um leyfi til að byggja hesthús á tveimur hæðum á lóð nr. 10-16 við Hrossnes.
Stærð 393,6 fermetrar og 1072,90 rúmmetrar.
Erindi fylgir umsögn skipulagsfulltrúa dags. 23. janúar 2025.
21.Háteigsvegur 33 - USK24110288
Sótt er um leyfi til þess fækka eignum, fjarlæga námsmannaíbúðir 0101, 0102 og 0103 og
stækka að sama skapi leikskóla á 1. hæð í fjölbýlishúsi nr. 33, mhl.01, á lóð nr. 31-33 við
Háteigsveg.
Erindi fylgir greinargerð Cowi um brunavarnir dags. 24 júní 2024, umsögn
burðarvirkishönnuðar dags. 6. júní 2024 og samþykki meðlóðarhafa á aðaluppdráttum og
yfirlit breytinga á afriti aðaluppdráttar samþykktum 17. desember 2002.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.
22.Hólmgarður 30 - USK25010105
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN057238 þannig að horfið er frá áformum um að reisa
steypta viðbyggingu til suðurs ásamt steyptum svölum á 2. hæð og þaksvölum ofan á 2
hæð. Í stað þess er sótt um að setja svalir framan við kvist á rishæð sem áður áttu að vera
þaksvalir á húsi á lóð nr. 30 við Hólmgarð.
23.Hólmgarður 46 - USK25010104
Sótt er um leyfi til að breyta erindi USK24030045 með því að dýpka svalir í risi og sleppa
svölum á annarri hæð á húsi á lóð nr. 46 við Hólmgarð.
24.Iðunnarbrunnur 14 - USK24050040
Sótt er um leyfi til að byggja tveggja hæða tvíbýlishús úr hleðslukubbum, efri hæð klædd
steinflísum, á lóð nr. 14 við Iðunnarbrunn.
Stærð, A-rými: 282,1 fermetrar., 928,4 rúmmetrar.
B-rými: 71,7 fermetrar. Samtals 353,8 fermetrar.
25.Kleifarvegur 12 - USK25010126
Sótt er um leyfi til að stækka baðherbergi og breyta innra skipulag og til að byggja
garðskála undir svölum 1. hæðar í tvíbýlishúsi á lóð nr. 12 við Kleifarveg.
Erindi fylgir samþykki meðeiganda dags. 29. september 2024, yfirlit breytinga, gátlisti
umsækjanda og greinargerð hönnunarstjóra um ábyrgðarsvið hönnuða dags. 14. janúar
2025.
Stækkun: 31,7 fermetrar, 76,6 rúmmetrar.
Eftir breytingu: 442,5 fermetrar, 1.229,2 rúmmetrar.
Skipulagsfulltrúi gerir ekki athugasemd við erindið sbr. bókun 23. janúar 2025
26.Lambhagavegur 33 - USK25010190
Sótt er um leyfi til þess að byggja 2- 4 hæða skrifstofu- og verslunarhús með bílageymslu
á lóð nr. 33 við Lambhaga.
Stærð: 5.292.5 ferm., 21.846.4 rúmmetrar.
Erindi fylgir ódagsett greinargerð hönnuðar, minnisblað Lotu verkfræðistofu um
brunavarnir dags. 16. janúar 2025, mæliblað 2.645.1 dags. 26. júní 2012 og hæðablað 2-
645-1 dags. 2. febrúar 2023.
27.Laugavegur 1 - USK25010147
Sótt er um leyfi til þess að endurgera hús og byggja nýbyggingu á bakhlið húss á lóð nr. 1
við Laugaveg.
Erindi fylgir mæliblað 1.171.0 og umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 19. maí 2022.
28.Laugavegur 18 - USK25010173
Sótt er um leyfi fyrir innanhússbreytingum sem snýr að lokun hurðargata, reisa veggi og
auka leyfilegan gestafjölda úr 300 í 348 manns í húsi á lóð nr. 18 við Laugaveg.
29.Laugavegur 29 - USK25010213
Sótt er um leyfi til að breyta erindi USK23090251 þannig að opnað er inní bakbyggingar,
gerð skábraut þangað, léttir veggir fjarlægðir og innréttuð rakarastofa í bakhúsi á lóð nr.
29 við Laugaveg.
Erindi fylgir yfirlit breytinga.
30.Melar II - USK24110305
Sótt er um leyfi til að byggja viðbyggingu úr timbri við suðausturgafl einbýlishúss á lóðinni
Melar II með landnúmer 125723.
Erindi fylgir greinargerð hönnunarstjóra dags. 25. nóvember 2024, vottorð um
starfsábyrgðartryggingu dags. 1. apríl 2024 og yfirlit breytinga.
Stækkun: 275,1 fermetrar, 1.155,4 rúmmetrar.
Eftir stækkun: 401,3 fermetrar, 1.577,4 rúmmetrar.
Grenndarkynningu lokið án athugasemda.
31.Norðurstígur 3 - USK25010193
Sótt er um leyfi til að að byggja tvær hæðir ofan á núverandi íbúðarhús, fjölga eignum og
bæta við tveimur íbúðum í íbúðarhúsi á lóð nr. 3 við Norðurstíg.
Stækkun: 136.7 fermetrar., 414.4 rúmmetrar.
Sambærileg erindi BN053130 og BN057007 voru samþykkt á afgreiðslufundi þann 10.
október 2017 og þann 28. janúar 2020 en féllu úr gildi þar sem ekki var gefið út
byggingarleyfi.
Erindi fylgir samþykki meðeigenda á teikningum THG arkitekta dagsettum 17. desember
2024, afrit af deiliskipulagsuppdrætti fyrir Norðurstígsreit 1.132.0, auglýst í B-deild
Stjórnartíðinda 15. febrúar 2017 og afrit af aðalteikningum sem samþykktar voru 28.
janúar 2020.
32.Óðinsgata 32B - USK24100115
Sótt er um heimild til að byggja sólpall, breyta flóttaleið og gera skyggni yfir anddyri húss á
lóð nr. 32B við Óðinsgötu.
33.Reykjavegur 15 - USK25010194
Sótt er um leyfi til að koma fyrir 10 færanlegum kennslustofum sem verða 1. áfangi
"Skólaþorps", sem hýsa á nemendur Laugarnesskóla meðan á endurnýjun hans stendur,
á lóð nr. 15 við Reykjaveg.
Stærð: 832,6 fermetrar, 2.959,1 rúmmetrar.
Erindi fylgir greinargerð um brunavarnir frá COWI dags. 15. janúar 2025.
34.Reynimelur 57 - USK24120011
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum vegna viðauka við eignaskiptayfirlýsingu,
þannig að aðkomu og innra skipulagi er breytt að íbúð 0301 í risi íbúðarhúss á lóð nr. 27
við Reynimel.
Erindi fylgir samþykki meðeigenda á teikningu nr: 19-01 dags. 20. janúar 2025 og yfirlit
breytinga á afriti aðaluppdráttar samþykktum 19. júní 2012.
35.Reynimelur 66 - USK24010330
Sótt er um leyfi til að byggja steinsteypt tvíbýlishús, tvær hæðir á kjallara með inndreginni
þakhæð á lóð nr. 66 við Reynimel.
Erindi fylgir yfirlit um ábyrgðarsvið hönnuða dags. 10. janúar 2024 og umsögn
skipulagsfulltrúa dags. 15. febrúar 2024.
Stærð: 499,4 fermetrar, 1.499,2 rúmmetrar.
36.Seljabraut 38 - USK24100180
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum sem felast í að innra skipulagi hefur verið
breytt og íbúð hefur verið stækkuð með því að opna upp i þakrými þar sem innréttuð hefur
verið geymsla og sjónvarpshol auk þess sem komið hefur verið stiga á milli hæða í íbúð
0401 í fjölbýlishúsi nr. 38, mhl.02 á lóð nr. 36 - 52 við Seljabraut.
Stækkun íbúðar 0401: 33.6 fermetrar, 77.4 rúmmetrar.
Erindi fylgir samþykki meðeiganda í skjölum dags. 17. janúar 2025 og 11. nóvember 2024
og yfirlit breytinga á afriti aðaluppdráttar samþykktum 22. mars 2005.
37.Selásbraut 98 - USK24110241
Sótt er um leyfi til að breyta erindi USK23070145, stækka bílaplan, breyta hjólaskýli og
breyta efsta þaki svala í steinsteypu í húsi á lóð nr. 98 við Selásbraut.
Erindinu fylgir yfirlit breytinga.
38.Skúlagata 28 - USK25010251
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN055171 vegna lokaúttektar þannig að uppsetningu
lyftu verður frestað og komið er fyrir snyrtingu fyrir hreyfihamlaða og gerðar eru breytingar
á brunamerkingum á 1. hæð í húsi á lóð nr. 28 við Skúlagötu.
Erindi fylgir bréf hönnuðar dags. 21. janúar 2025.
39.Snorrabraut 77 - USK24110289
Sótt er um leyfi til að hækka ris og skipta í tvær íbúðir einbýlishúsi á lóð nr. 77 við
Snorrabraut.
Erindi fylgir yfirlit breytinga og umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 21. jamúar 2025..
Stækkun: 44,4 fermetrar, 157,9 rúmmetrar.
Eftir stækkun; 268,6 fermnetrar. 778,1 rúmmetrar
.
40.Snorrabraut 83 - USK24060305
Sótt er um leyfi til þess að breyta notkun mhl.02 úr bílskúr í gistirými 02-0101 og 02-102
og breyta notkun íbúða í gistiheimili í flokki ll tegund d, íbúð 0001 í gistiheimili fyrir 6 gesti
í þremur herbergjum, íbúð 0101 í gistiheimili fyrir 10 gesti í 5 herbergjum í íbúð 0101 og
02-0101 og íbúð 0201 í gistiheimili fyrir 10 gesti í 6 herbergjum í húsi á lóð nr. 83 við
Snorrabraut.
Erindi fylgir yfirlit breytinga á afriti aðaluppdráttar samþykktum 21. ágúst 1957.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.
41.Stálhöfði 2 - USK24110324
Sótt er um leyfi til þess að breyta erindi USK24050360 þannig að fallið er frá hluta af
kjallara -1, geymslur eru minnkaðar, innra skipulagi íbúða er breytt, þakfrágangur er
uppfærður, lóðarhönnun er breytt, skábrautum breytt í tröppur, djúpgámum fækkað auk
þess sem brunahönnun er breytt og skráningartafla uppfærð fyrir fjölbýlishús á lóð nr. 2
við Stálhöfða.
Breytt stærð: 19.383.5 ferm., 54.827.5 rúmm.
Erindi fylgir ódagsett yfirlýsing ÞG verks vegna fjölda djúpgáma, greinargerð Örugg
verkfræðistofu um brunavarnir útgáfa V03 dags. 19. september 2024, greinargerð
hönnuðar til skýringa á breyttum stærðum mannvirkis dags. 19. desember 2024,
greinargerð hönnuðar dags. 26. nóvember 2024 og yfirlit breytinga á afriti óstimplaðra
aðaluppdrátta.
42.Stórhöfði 15 - USK25010195
Sótt er um leyfi til þess að breyta innra skipulag í verslunarhúsnæði á lóð nr. 15 við
Stórhöfða.
Erindi fylgir yfirlit breytinga dags. 25. nóvember 2011.
43.Suðurlandsbraut 30 - nýr inngangur - USK24080268
Sótt er um leyfi til þess að breyta innra skipulagi í rými 0201, innrétta skrifstofur fyrir 70
starfsmenn og fundarrými fyrir mest 200 manns, fækka bílastæðum um þrjú og koma
fyrir skábraut og inngangi með aðgengi fyrir fatlaða og skyggni við suðvesturgafl
verslunar- og skrifstofuhúss á lóð nr. 30 við Suðurlandsbraut.
Erindi fylgir samþykki meðeigenda dags. 7. janúar 2025, umsögn burðarvirkishönnuðar
dags. 3. október 2024, uppfærð greinargerð hönnuðar dags. 20. janúar 2025, greinargerð
hönnuðar dags. 26. ágúst 2024, mæliblað 1.265.0 útgefið 30. október 2006 og yfirlit
breytinga á afriti aðaluppdráttar samþykktum 21. október 2003.
44.Sævarhöfði 33 - Niðurrif - USK25010192
Sótt er um leyfi til þess að rífa skrifstofuhúsnæði mhl01 á lóð nr. 33 við Sævarhöfða
Erindi fylgir áætlun um meðhöndlun úrgangs.
Stærðir: Ferm. 395,3
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
45.Sæviðarsund 100 - USK24100340
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum sem felast í að byggður hefur verið garðskáli
við suðausturhlið bílskúrs, með aðgengi að verönd og heitum potti auk þess sem gerður
hefur verið hurð og tröppur niður í garð frá þvottahúsi einbýlishúss á lóð nr. 100 við
Sæviðarsund.
Stærð garðskála 12.1 fermetrar., 27.8 rúmmetrar.
Erindi fylgir afrit mæliblað 1.411.3 dags. í ágúst 1978 og yfirlit breytinga á aðaluppdrætti
samþykktum 11. febrúar 1965 .
46.Vatnsveituvegur . Fákur - USK24050151
Sótt er um leyfi til að byggja stoðvegg við Faxaból 12 á lóð við Vatnsveituveg Fákur.
Erindi fylgir samþykki meðeigenda ódagsett.
47.Vesturfold 1 - USK24120054
Sótt er um leyfi til að breikka glugga á norðurhlið hússins auk þess eru gerðar breytingar á
innra skipulagi efri hæðar húss á lóð nr. 1 við Vesturfold.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
48.Þórðarhöfði 4 - Niðurrif - USK25010175
Sótt er um leyfi fyrir niðurrifi á geymslubröggum mhl.01,02,03,04,05,06,07,08,09,10,11, og
12 á lóð nr. 4 við Þórðarhöfða. Erindi fylgir áætlun um meðhöndlun á byggingar- og
niðurrifsúrgangi. Samtals stærð húsa 4.464 fermetrar.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.
49.Öldugrandi 9 - USK25010177
Sótt er um leyfi til þess að breyta bílastæðum á lóð nr. 9 við Öldugranda
Fundi slitið kl. 12:15