Lögð fram umsagnarbeiðni Skipulagsstofnunar, dags. 14. janúar 2025, þar sem óskað er eftir umsögn vegna matsskyldufyrirspurnar
Stjörnueggja hf.
vegna framkvæmdar á reit C að Saltvík á Kjalarnesi. Reist hafa verið 2 ný varphús á reitnum til þess að anna eftirspurn eftir eggjum. Fyrra húsið var reist og tekið í notkun 2023 og seinna húsið verður tekið í notkun 2025. Stæði fyrir varpfugla verður samtals um 49.500.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.