Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 16. janúar 2025 var lögð fram fyrirspurn Borgarbókasafns Reykjavíkur, dags. 10. janúar 2025, um að setja gróðurhús á lóð nr. 23A við Sólheima. Einnig eru lögð fram fylgigögn, ódags., þ.e. upplýsingar um stærð og útlit gróðurhúss og loftmynd sem sýnir staðsetningu gróðurhúss. Fyrirspurninni var var vísað til umsagnar verkefnastjóra og er nú lögð fram að nýju.
Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið.