Fyrirspurn
Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 6. janúar 2025 ásamt kæru nr. 181/2024 dags. 24. desember 2024 þar sem kærð er ákvörðun deildar afnota og eftirlits á umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar. Einnig er lögð fram greinargerð Reykjavíkurborgar dags. 3. febrúar 2025. Jafnframt er lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 20. mars 2025. Úrskurðarorð: Hafnað er kröfu kæranda um að ógilda ákvörðun byggingafulltrúans í Reykjavík frá 31. október 2024 um að kærandi skuli leggja fram samþykki aðliggjandi lóðarhafa en ella fjarlægja girðingu á lóðamörkum Nökkvavogs 22 og 24.