Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 332
Annað
Fyrirspurn
Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 20. desember 2024 ásamt kæru nr. 179/2024, dags. 20. desember 2024, þar sem kærð er ákvörðun skipulagsfulltrúa að samþykkja breytingu á skilmálum deiliskipulags reits 1.520, Lýsisreits vegna lóðarinnar Hringbraut 121. Einnig er lögð fram greinargerð Reykjavíkurborgar dags. 6. janúar 2025. Jafnframt er lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 22. janúar 2025. Úrskurðarorð: Felld er úr gildi ákvörðun skipulagsfulltrúa Reykjavíkur frá 28. nóvember 2024 um að samþykkja tillögu að breytingu á skilmálum deiliskipulags reits 1.520, Lýsisreits, vegna lóðar nr. 121 við Hringbraut.