Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 9. janúar 2025 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 7. janúar 2025 þar sem sótt er um leyfi fyrir áður gerðri íbúð í risi og byggja kvisti og svalir í húsi á lóð nr. 79 við Grettisgötu. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju. Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið.
Svar
Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið.