Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að nýju deiliskipulagi fyrir göturými á Ártúnshöfða 2 en um er að ræða svæði sem verður neðsti hluta Stórhöfða og tengist við Sævarhöfða. Tillagan er hluti af 1. lotu Borgarlínu og afmarkast af gatnamótum Sævarhöfða og Stórhöfða til vesturs, deiliskipulagsmörkum Ártúnshöfða við Elliðaárvog svæðis 1 til austurs og deiliskipulagsmörkum Ártúnshöfða við Elliðaárvog svæðis 2A til norðurs. Til suðurs afmarkast svæðið af lóðamörkum sunnan Stórhöfða og deiliskipulagsmörkum Elliðaárvogs við Ártúnshöfða svæði 2C. Með tilkomu nýs deiliskipulags verður bætt við nýju göturými fyrir Borgarlínu frá Sævarhöfða að Krossamýrartorgi ásamt einni stöð, Sævarhöfða. Hjóla- og göngustígum er bætt við beggja vegna Borgarlínubrauta og þannig er tryggt aðgengi virkra ferðamáta við götuna. Akreinar fyrir almenna bílaumferð verða að mestu leyti einbreiðar, nema við gatnamót Sævarhöfða og Stórhöfða. Þá er grænni ásýnd gatnanna aukin með skilgreindum svæðum fyrir gróður og regnvatnslausnum ofanjarðar, samkvæmt uppdrætti og greinargerð frá Arkís arkitektum, dags. 10. desember 2024. Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs til afgreiðslu.
Svar
Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs til afgreiðslu.