Fyrirspurn
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi fyrirspurn:
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins óska svara frá Reykjavíkurborg og Strætó BS. vegna tímabundinnar endastöðvar Strætó við Skúlagötu. Hvað taka eigi til bragðs til að vagnstjórar láti af því að hafa vagna í lausagangi eða hafi hávaðasamar viftur í gangi í vögnum á meðan þeir eru ekki í akstri. Þá óska borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins eftir svörum frá Strætó um hvernig fyrirtækið ætli að eyða því ónæði sem fólk hefur á heimilum sínum vegna starfsemi fyrirtækisins á þessari tímabundnu endastöð. Greinargerð fylgir fyrirspurn.