Bræðraborgarstígur 1, 3 og 5 - Nýtt deiliskipulag
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 9 mánuðum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 997
23. janúar, 2025
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 16. janúar 2025 var lögð fram umsókn Yrki arkitekta ehf. , dags. 10. desember 2024, um nýtt deiliskipulag fyrir lóðirnar nr. 1, 3 og 5 við Bræðraborgarstíg. Tilgangur með nýju deiliskipulagi fyrir svæðið er að skilgreina og setja skilmála um umfang uppbyggingar á lóðunum. Í þessar tillögu er verið að leggja til byggingarheimildir á Bræðraborgarstíg 1 og 3, en talið er að lóðin að Bræðraborgarstíg 5 sé full byggð, samkvæmt greinargerð og deiliskipulagsuppdráttum Yrki arkitekta, dags. 10. desember 2024. Einnig er lögð fram umsögn Minjastofnunar Íslands, dags. 21. janúar 2025, og húsa- og fornleifakönnun Fornleifastofnunar Íslands, dags. árið 2024. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju .
Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs til afgreiðslu.
Vakin er athygli á því að áður en kemur til auglýsingar á breytingu á deiliskipulagi, þarf umsækjandi áður að greiða skv. 7.5. gr. í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu nr. 1381/2024.
Svar

Vakin er athygli á því að áður en kemur til auglýsingar á breytingu á deiliskipulagi, þarf umsækjandi áður að greiða skv. 7.5. gr. í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu nr. 1381/2024.