Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 19. desember 2024 var lögð fram umsókn Húsfélagsins Súðarvogi 7, dags. 6. desember 2024, ásamt bréfi PLAN Studio, dags. 6. desember 2024, um breytingu á deiliskipulagi Vogabyggðar svæðis 2 vegna lóðarinnar nr. 7 við Súðarvog. Í breytingunni sem lögð er til felst að almenningsrými við norðaustur horn núverandi lóðar verði hluti að lóðinni með tilheyrandi stækkun byggingarréttar og fjölgun íbúða, samkvæmt deiliskipulags- og skýringaruppdráttum PLAN Studio, dags. 11. febrúar 2025. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju.
Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs til afgreiðslu.
Komi til auglýsingar á breytingu á deiliskipulagi, þarf umsækjandi áður að greiða skv. 7.5. gr. í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu nr. 1381/2024.