Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 5. desember 2024 var lögð fram umsókn Gísla Álfgeirssonar, dags. 29. nóvember 2024, um breytingu á skilmálum deiliskipulags Úlfarsárdals vegna lóðarinnar nr. 14 við Iðunnarbrunn. Í breytingunni sem lögð er til felst aukning á byggingarmagni, samkvæmt tillögu, dags. 3. janúar 2025, samkvæmt Einnig eru lagðir fram uppdrættir Heildstæðrar hönnuðar, dags. 12. október 2024. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju.
Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar. Samþykkt að falla frá kynningu þar sem breyting á deiliskipulagi varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda (og borgarinnar), sbr. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir óverulega breytingu á deiliskipulagi á grundvelli málsmeðferðar skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga og þarf að greiða skv. 8.2. gr. í gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1276/2023, áður en breytingin er auglýst í B-deild Stjórnartíðinda.