Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 11 mánuðum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 336
Annað
Fyrirspurn
Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 29. nóvember 2024 ásamt kæru nr. 163/2024, dags. 27. nóvember 2024, þar sem kærð er ákvörðun byggingarfulltrúa að samþykkja og gefa út byggingarleyfi vegna Hraunbæjar 102A. Einnig er lögð fram greinargerð Reykjavíkurborgar dags. 20. desember 2024. Jafnframt er lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 10. febrúar 2025. Úrskurðarorð: Kærumáli þessu er vísað frá úrskurðarnefndinni.