Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 3. desember 2024 þar sem sótt er um leyfi til að byggja viðbyggingu úr timbri við suðausturgafl einbýlishúss á lóðinni Melar II með landnúmer 125723. Erindi var grenndarkynnt frá 15. janúar 2025 til og með 12. febrúar 2025, en þar sem samþykki hagsmunaaðila barst 21. janúar 2025 er erindi nú lagt fram að nýju.
Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa sbr. viðauki 2.3. við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar. Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.