Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 26. nóvember 2024 þar sem sótt er um leyfi til að byggja einbýlishús úr timbri með innbyggðri bílgeymslu á lóðinni Stóragil með landnúmer 237090. Erindið var grenndarkynnt frá 8. janúar 2025 til og með 5. febrúar 2025. Athugasemdir bárust. Vísað til umsagnar verkefnastjóra.