Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 10 mánuðum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 339
Annað
Fyrirspurn
Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 13. nóvember 2024 ásamt kæru nr. 153/2024, dags. ódagsett, þar sem kærð er ákvörðun byggingarfulltrúa Reykjavíkur um að hækkun girðingar við Karlagötu 1 verði fjarlægð en dagsektir verði lagðar á ef ekki verði brugðist við. Einnig er lögð fram greinargerð Reykjavíkurborgar dags. 20. desember 2024. Jafnframt er lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 27. mars 2025. Úrskurðarorð: Felld er úr gildi ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 31. október 2024 um að hækkun girðingar við Karlagötu 1 verði fjarlægð að viðlögðum dagsektum.