Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 331
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram að nýju tillaga áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um grundvallar endurskoðun á uppbyggingaráformum í Grafarvogi, sbr. 33. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 13. nóvember 2024. Greinargerð fylgir tillögu. Einnig er lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu Aðalskipulags og loftlagsmála, húsnæðisátakshóps, dags. 10. janúar 2025.
Svar

Vísað frá með fjórum atkvæðum fulltrúa Samfylkingar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar gegn tveimur atkvæðum Sjálfstæðisflokksins og fulltrúi Vinstri grænna situr hjá við afgreiðslu málsins.
Fulltrúar Samfylkingar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi bókun:
Tillögunni er vísað frá enda málið í skýrum farvegi þar sem umfangsmikið samráðsferli er hluti máls og verið að vinna úr ábendingum íbúa og leggja grunn að uppfærslu tillagna á þeim grunni.
Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúi Flokks fólksins lýsir vonbrigðum sínum með frávísun tillögunnar sem lögð var fram fyrst og fremst með hagsmuni íbúa svæðisins í huga. Einnig verður að minna á þá staðreynd enn og aftur að þétting byggðar í Reykjavík hefur oft á tíðum gengið aðeins of langt hvað varðar land og rými. Allt of mikið skuggavarp hefur átt sér stað á milli húsa sem skert hefur verulega lífsgæði íbúa margra nýrra bygginga sem virðast hafa verið reistar með það að markmiði að auka byggingarmagn á lóðum eins mikið og hægt er - með fyrrgreindum afleiðingum. Er það þó von fulltrúans að í áframhaldandi vinnu varðandi uppbyggingaráform í Grafarvogi verði allt gert til þess að taka sem mest tillit til sjónarmiða íbúa hverfisins.