Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 326
Frestað
Fyrirspurn
Lögð fram svohljóðandi tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins: Lagt er til að ráðist verði í viðhaldsátak við hlaðnar gangbrautir og hraðahindranir í Reykjavík á árinu 2025. Slíkt viðhald hefur verið vanrækt þannig að mjög víða um borgina hafa hleðslusteinar losnað frá og brotnað upp úr gangstéttum og hraðahindrunum. Þetta hefur þær afleiðingar að á fjölmörgum gangbrautum hafa myndast holur og ójöfnur. Það hefur óþægindi og hættur í för með sér, ekki síst fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur. Óskynsamlegt er að láta slíkt viðhald reka á reiðanum þar sem lausir hleðslusteinar eru fljótir að smita út frá sér og valda þannig enn meiri skemmdum og óþægindum fyrir vegfarendur.
Svar

Frestað.