Fyrirspurn
Lögð fram svohljóðandi tillaga áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins:
Fulltrúi Flokks fólksins leggur til að friðlýsingarmörk í Grafarvogi verði samþykkt vegna þess að Umhverfisstofnun, ALTA ráðgjafar o.fl. hafi sagt að Grafarvogur fyrir innan Gullinbrú sé ein af mestu náttúruperlum Reykjavíkur og fuglalíf þar og leirur einstakar. Umhverfisráðherra hefur lagt til að friðlýsing svæðisins verði færð frá fjöru og upp að göngustíg, auk þess sem leirur í austri upp Grafarlæk yrðu friðaðar. Nú stendur aðeins á borginni. Í meirihlutanum er flokkar sem hafa lagt mikið upp úr því að vera umhverfisvænir svo þeim er ekkert að vanbúnaði.