Synjað er beiðni um breytingu á deiliskipulagi með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 19. júní 2025 með 4 atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Sósíalistaflokks Íslands og Flokks fólksins. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins greiða atkvæði gegn synjuninni.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og áheyrnarfulltrúa Vinstri grænna:
Tillaga að hækkun hússins myndi samkvæmt fyrirliggjandi gögnum valda of miklu skuggavarpi á íbúðarrými í nálægum húsum yfir meira en hálft árið. Henni er synjað af þessum sökum.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins:
Fulltrúar Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks geta ekki staðfest synjun á beiðni um breytingu á deiliskipulagi vegna Vesturgötu 42. Beiðni um hækkun hússins er í samræmi við hæð húsa sem þegar eru í götunni. Ekki er nægilegt að vísa í skuggvarp sem megin ástæðu synjunar þar sem skuggavarp er þegar víða í nærliggjandi og er afstætt mat. Fulltrúarnir benda líka á málið hefur tafist úr hófi, til dæmis lágu umsagnir nágranna fyrir í febrúar og hvetja Reykjavíkurborg til að vinna hraðar út málum sem þessum.