Síðast Vísað til umhverfis- og skipulagssviðs á fundi fyrir 1 ári síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 324
Annað
‹ 32
33
Fyrirspurn
Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins: Fulltrúi Flokks fólksins óskar eftir upplýsingum um eignina Bjarnaborg, Hverfisgötu 83 og hver sé staðan á henni í ljósi þess að eignin virðist liggja undir skemmdum. Hefur eignin fengið nýja eigendur? Hver er áætlun um eignina til skemmri og lengri tíma? Hér er um merka byggingu sögulega séð að ræða og það kemur borgarbúum við hvernig höndlað er með slíka byggingu. Greinargerð fylgir fyrirspurn.