Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 3. apríl 2025 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 11. febrúar 2025 þar sem sótt er um leyfi til þess að breyta notkun íbúðarhúss í gististað í flokki ll tegund g, fyrir allt að 10 gesti og bæta við flóttaleið með því að gera brú yfir kjallarainngang á vesturhlið húss á lóð nr. 16 við Urðarstíg. Einnig var lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 20. febrúar 2025. Jafnframt var lagt fram bréf Hjalta Steinþórssonar lögmanns, dags. 23. febrúar 2025, þar sem óskað er eftir endurskoðun á umsögn skipulagsfulltrúa og minnisblað skrifstofu stjórnsýslu og gæða, dags. 20. mars 2025. Erindi er nú lagt fram að nýju ásamt bréfi Hjalta Steinþórssonar lögmanns, ódags. þar sem gerðar eru athugasemdir við minnisblað lögfræðideildar skrifstofu stjórnsýslu og gæða. Einnig er lagt fram bréf skrifstofu stjórnsýslu og gæða. dags. 8. apríl 2025.
Bréf skrifstofu stjórnsýslu og gæða dags. 8. apríl 2025 lagt fram og samþykkt.