Klettasvæði - Breyting á deiliskipulagi - Köllunarklettsvegur 6
Köllunarklettsveg 6
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 990
25. nóvember, 2024
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn TÓ arkitekta ehf., dags. 29. október 2024, um breytingu á deiliskipulagi Klettasvæðis, vegna lóðarinnar nr. 6 við Köllunarklettsveg. Í breytingunni sem lögð er til felst hækkun á hámarkshæð byggingarinnar um 5 m, samkvæmt uppdrætti TÓ arkitekta, dags. 29. október 2024. Einnig er lagt fram bréf Faxaflóahafna, dags. 29. október 2024.
Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi fyrir hagsmunaaðilum að Köllunarklettsvegi 1, 3-5, 4, og 8, Klettagörðum 15-17 og 21 þegar uppfærðir uppdrættir berast.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram skv. 7.6. gr. í gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1276/2023.
Svar

Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram skv. 7.6. gr. í gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1276/2023.