Fyrirspurn
Lögð fram tillaga skóla- og frístundasviðs að breytingu á deiliskipulagi Laugardals vegna skólaþorps við Reykjaveg. Í breytingunni sem lögð er til felst að áður skilgreind lóð fyrir Ævintýraborg, tímabundið leikskólaúrræði Reykjavíkurborgar, er breytt í lóð fyrir skólaþorp, tímabundið grunnskólaúrræði Reykjavíkurborgar. Auk þess er lóðin stækkuð út fyrir mörk núverandi bílastæða og yfir aðliggjandi stíg, byggingarheimildir auknar og umferðarfyrirkomulagi breytt á bílastæðum milli Reykjavegar og Laugardalsvallar ásamt því að syðri innkeyrslu á stæðin frá Reykjavegi verður lokað, samkvæmt uppdr. Landslags, dags. 23. janúar 2025. Einnig er lagt fram samgöngumat VSB verkfræðistofu, dags. 10. janúar 2025.