Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 28. nóvember 2024 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 26. nóvember 2024 þar sem sótt er um leyfi til að stækka svalir og einangra og klæða að utan menningarmiðstöðina í Gerðubergi á lóð nr. 3-5 við Gerðuberg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 23. janúar 2025.
Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 23. janúar 2025, samþykkt.