Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 324
Annað
Fyrirspurn
Fram fer kynning á drögum að tillögu starfshóps um skipulagsvinnu og samninga vegna lífsgæðakjarna, sem boðaður var frá skrifstofu borgarstjóra og borgarritara með fulltrúum frá Umhverfis- og skipulagssviði. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: Flokkur fólksins lagði til árið 2021 að skipuleggja byggð fyrir eldra fólk víðs vegar í Reykjavík einskonar lífsgæðakjarna. Fjölmargir vilja einmitt að íbúðasvæði í borginni verði skipulögð þar sem sérstök áhersla er lögð á þjónustu við eldra fólk og þeirra þarfir. Hugmyndin um lífsgæðakjarna er að byggja upp svæði fyrir eldra fólk þar sem þarfir þeirra og áhugamál eru í forgangi og allt um liggjandi. Á slíku svæði er ekki þörf á skólum og leikskólum. Fyrir liggja samningar um uppbyggingu lífsgæðakjarna, húsnæðisuppbyggingar fyrir eldri borgara með fjölbreyttu framboði af þjónustu í nærumhverfinu, meðal annars á Leirtjörn Vestur. Á Borgarspítalareit vill fulltrúi Flokks fólksins sjá fyrst og fremst kjarna fyrir eldri borgara enda nú þegar komin þar slík byggð sem reynst hefur vel. Þessi staðsetning hentar mjög vel fyrir íbúðabyggð fyrir eldra fólk sbr. það sem fyrir er á Sléttuvegi og nágrenni. Ef framkvæma á hugmynd sem þessa þarf að upplýsa og tala sem fyrst við við þá sem búa á svæðinu. Hönnuðir þurfa að aðlaga sig að þörfum og óskum borgarbúa, þeirra sem þarna er ætlað að búa og hafa notendavæna hönnun að leiðarljósi. Mest um vert er að það sé stutt í alla nærþjónustu og afþreyingarmöguleika.