Fyrirspurn
Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 7. október 2024 ásamt kæru nr. 115/2024, dags. 5. október 2024, þar sem kærð er ákvörðun Reykjavíkurborgar um að samþykkja nýtt hverfisskipulag fyrir Háteigshverfi, Hlíðahverfi og Öskjuhlíðarhverfi, sem og ákvörðun borgarinnar um útgáfu byggingarleyfis fyrir Stigahlíð 86. Einnig er lögð fram greinargerð Reykjavíkurborgar, dags. 6. nóvember 2024.