Lögð fram fyrirspurn Birkis Árnasonar, dags. 26. september 2024, um breytingu á deiliskipulagi Vogabyggðar svæðis 1 vegna lóðarinnar nr. 54 við Stefnisvog, sem felst í að hækka nýtingarhlutfall lóðarinnar, fjölga íbúðum og stækka byggingarreit 6. hæðar, samkvæmt tillögu Nordic Office of Architecture, ódags. Vísað til umsagnar verkefnastjóra.