Lögð fram umsókn Benedikts Jóns Þórðarsonar, f. h.
Veitna ohf.
, dags. 17. september 2024, um framkvæmdaleyfi vegna borunar á hitastigulsholum við sunnanverðan Grafarvog til að kanna hvort heitt vatn finnist þar. Einnig er lögð fram skýrsla Veitna (Verðfyrirspurn), dags. 5. september 2024.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.
Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1276/2023.